22 júní 2006

Kláraði að þýða

the Four Agreements fyrir Sölku í dag og fékk líka að vita að ég hefði fengið 100.000 þúsund úr þýðingarsjóði til að þýða ljóðabók eftir Diane di Prima, plús heimild frá henni sjálfri til þess að gera það. Þannig að ég er býsna kát og full af þakklæti. Þarf fyrst að þýða heila bók sem ég er ekki síður spennt að þýða, samtöl Ikeda og Gorbachev. Mun því ekkert blogga hérna í nokkrar vikur. Ef að ég get mögulegt haldið aftur af mér. Er líka með nokkur ljóð í war and peace and everything in between hefti mindfire og eitt í ítölsku ljósmyndablaði sem heitir private, mjög flott tímarit.

19 júní 2006

Fékk þetta í póstinum áðan

Fyrstu verðlaun í hönnun

fær auglýsingastofan sem bjó til þessa auglýsingu Svona viljum við hafa það!!!!?????? og svo auglýsingaherferð Björns Inga þar sem hann var látin líta út eins og gulrót sem kann ekkert að gera í lífinu nema að tala í gemsa.

OR auglýsingin er svo absúrd að mig skortir orð til að lýsa því sem ég upplifði þegar ég horfði á hana.

Ein spurning, "Pabbi, hvernig skilum við orkunni til fjallanna?"

18 júní 2006

í gær fann ég

týndan óskastein, ég fann líka dauðan kött í hvítum bát sem hafði drukknað. Hélt fyrst að þetta væri undarlegt umhverfislistaverk. Kötturinn var eitthvað svo fallegur þar sem hann flaut friðsæll í vatninu.

Þá stökk hlussuhundur, ein 32 kíló á Delphin sem er aðeins léttari og í gleðilátum hlussuhundsins þá klóraði hann Delphin í framan. Það var furðuleg sjón og en Delphin vildi endilega fara aftur til hundsins eftir að hann var búinn að jafna sig. Delphin hefur sjaldan verið hrædd sál.

Ég hitt þvísem næst alla fjölskyldu mína í gær, mamma komin í heimsókn frá veldi Dana og það þýðir alltaf meiri samskipti við ættingja sem ég annars sé því sem næst aldrei. Ætla svo að bruna til Hverageragerðis eftir vinnu í dag til ömmu. Hún ætlar að kenna mér að búa til hrísgrjónaeplasúpu og Neptúnusi ætlar hún að kenna að gera vegan lummur... vonandi munu skýin hætta að gráta í dag.

Ég komst ekki á fund framtíðarlandsins í Austurbæ í gær, en ég skráði mig í félagið á netinu. Frábært hvað margir mættu... það er svo gaman að sjá snjóbolta renna niður brattar hlíðar og verða stóra ....

En núna á þessari stundu kalla skúringar og tölvupóstar á mig á víxl... þarf að ráða einhvern til að svara öllum þessum tölvupóstum... einhverjir sjálfboðaliðar takk????

17 júní 2006

Gleðilegan bananalýðveldisdag


ég sagði þetta við einhvern í vinnunni í gær þegar viðkomandi var að fara heim, þá sagði Fuglinn, "hvaða helvítis kommúnismi er þetta." Ég hef verið dregin í ýmsa dilka í vinnunni, ég er með VG stimplað á ennið, ég er afturhaldskommatittur og hata ál, ég fæ á hverjum degi einhverja fimmaurabrandara sem tengjast því að ég er grænmetisæta, en engum dettur í hug að ég gæti verið íhaldsamasta manneskja á jörðinni. Já þar plataði ég þau öll. Ég er nefnilega haldin sjúkdómi sem heitir krónískur lygari og ekkert sem ég segi er satt, eða var það öfugt. Hver veit kannski kýs ég XB á laun og fer svo út í pylsuvagn í skjóli myrkurs og læt pulsa mig og kannski er ég haldin sjúklegri þjóðernishyggju og kann öll ljóð Einars Ben utanað. (það er reyndar þrálátur orðrómur í minni föðurætt að amma mín hún Birgitta hafi komið undir þegar langamma mín var í vist hjá Einari Ben).

en hvað um það afturhaldsíhaldstitturinn segir Hæ hó og Jibbí jey það er kominn banani í lýðveldið og drekkjum íslandi ekki banananum.

Gerist félagar í Framtíðarlandinu,

gerist stofnfélagar í félagi um framtíð Íslands: www.framtidarlandid.is

Framtíðarlandið – félag um framtíð Íslands verður stofnað í Austurbæ 17. júní, kl. 12:00.

Frumkvæðið að stofnun félagsins kemur frá einstaklingum af ólíkum sviðum þjóðlífssins sem telja að nú sé þörf fyrir afl sem upplýsir, gagnrýnir og leggur til hugmyndir að nýrri framtíðarsýn á Íslandi og að nauðsyn beri til að efla lýðræði og lýðræðislega umræðu – og grundvallarþætti samfélagsins: réttlæti, menntun og skapandi atvinnustefnu.

Framtíðarlandið er þverpólitískur mótsstaður með víðtækri þátttöku frumkvöðla, fræðimanna, viðskiptafólks, listamanna og einstaklinga af öllum sviðum atvinnulífsins. Framtíðarlandið á að vera vettvangur frjórra hugmynda um virkjun mannauðs og hugmyndaríkra einstaklinga.

Framtíðarlandinu er stefnt gegn einhæfri, úreltri atvinnustefnu þar sem höfuðáhersla er lögð á stóriðju með tilheyrandi vatnsaflsvirkjunum og stórfelldri og óáfturkræfri eyðileggingu náttúru og lands. Félagið hafnar ríkisrekinni byggðastefnu og stórfelldum „ríkisstýrðum“ stórverkefnum. Félagið vill sporna við fótum áður en kostir og möguleikar lands og þjóðar verða þrengdir enn meir en þegar hefur orðið.

Framtíðarlandið er vettvangur einstaklinga sem lætur sig framtíð – og nútíð – Íslands varða. Félagið vill jákvæða, skapandi atvinnustefnu í mannvænu, vistvænu, og lýðræðislegu andrúmslofti. Félagið vill kvikan og frjóan jarðveg þar sem frumkvöðlar og sprotafyrirtæki dafna; þar sem snjallar viðskiptahugmyndir fá að njóta sín; þar sem einstaklingurinn – og samfélagið – er skapandi.

Gerist stofnfélagar, takið þátt í mótun Íslands: www.framtidarlandid.is

14 júní 2006

OK ég á ekki

nýjasta gismóið og ekki mína eigin íbúð, en ég á dýrgripi svo ægifagra

annars þá er ég sammála þeim sem tala um mátt orðsins
því strengi ég þess heit að hætta svartagallsgaldri með því að slúðra um aðra
eða hallmæla eða hneppa í álög

eitt lítið orð getur gjörEytt manneskju, sér í lagi ef hún trúir bullinu í manni

08 júní 2006

Flokkur í útrýmingarhættu!!!!!!

FramsóknarSamba (Smellið á linkinn.) Nauðsynlegt að hlusta á til að fá fullkomin áhrif frá þessari stórglæsilegu mynd. Mikið eru þau falleg og framtíð landsins örugg í stórum og mjúkum höndum þeirra. Kjósum flokk með hjartað á réttum stað: Kjósum Framsókn.... áður en flokkurinn deyr, áður en tröllin snúa aftur í hellana sína... björgum skessum og fjörulallum frá útrýmingu...



veit ekki hver gerði þessa mynd né tónlist - en takka takka fyrir sköpunargleðina......

02 júní 2006

Til hamingju

Álland, Álgerður, Alcoa, hin heilaga þrenning framtíðarinnar
þið fangið athyglina, krækið í hana með réttlátri reiði hinna svívirtu og fjölmiðlarnir kaupa hana

Í gærkvöldi sofnaði ég sjóðbullandi reið, slíkt er fáheyrt í mínu lífi og ég held að í síðasta skipti sem það gerðist var eftir rifrildi við minn fyrrverandi, andfættlingaalkólistann fyrir nokkrum árum. Það sem verra er að ég vaknaði enn reið. Mér finnst leiðinlegt að vera reið. Það er eins og brennandi bál sem étur mig upp að innan. Ég verð yfirleitt reið vegna þess að mér finnst ég vera beitt siðferðislegu ranglæti eða þegar aðrir lenda í hinu sama. Ég er reið núna vegna þess að meirihluti þeirra sem ég hef talað við undanfarið koma sér undan ábyrgð á að tala, fjalla, hugsa um þessa fyrirhuguðu tortímingu Íslands vegna þess að á borða sem var sýnilegur við upphaf göngu íslandsvina stóð Drekkjum Valgerði ekki Íslandi. Ég get skilið að fólki finnist þetta ósmekklegt en heilbrigð skynsemi segir mér að strákarnir sem bjuggu til þennan borða hyggi á ekki að drekkja persónunni Valgerði. Íslandsvinir eru þú og ég, það er ömurlega léleg afsökun að þora ekki að gera eitthvað eins og að halda áfram að gera eitthvað til að stoppa þessa aðför að landi og þjóð vegna þess að á einhverjum borða stóð eitthvað. Þetta var jú mótmælaganga og öllum frjálst að tjá sig eins og þeim sýnist. Eða hvað? Næst ætla ég að ritskoða hvert einasta skilti. Ef mér finnst þau á einhvern hátt hallmæla ríkisstjórninni eða verndurum Íslands; Alcoa þá ætla ég að reka fólkið úr göngunni. Best er bara að hafa enga göngu. Best er bara að gera ekkert og helst hafa engar skoðanir. Best er að draga sig inn í skelina og vona að þetta reddist bara, nei ég er dregin í einhverja hallærislega dilka, meeeee meeeee, ég er frekjan og feimni athyglissjúklingurinn, ég ætti helst að loka mig inn í skelinni og henda lyklinum og ég ætti að halda kjafti og ekkert að vera að mótmæla lygunum og bullinu sem elsku þjóðin mín étur í hvert mál. Stútfull af gylliboðum, stútfull af ótta. Óttaland.

Sama gerðist í fyrra þá voru einhverjir tveir strákar sem úðuðu "ljótum" slagorðum á alþingishúsið og haldið ykkur fast: sjálfan Jón Sig. Þetta var mjög fréttnæmt og þjóðin og fjölmiðlar ákváðu að skella skollaeyrum við alvarlegum brotum á mannréttindum allra hinna mótmælendanna sem voru m.a. handteknir og haldið í varðhaldi út af engu nema tilvist sinni, lögregla ruddist inn á heimili mótmælenda og fylgdi sumum okkar hvert fótmál. En vegna þess að úðað var á þessa staði og note bene það var búið að þvo þetta af um hádegi. Nei þá fór öll athyglin í að tuða yfir því hve smekklaust þetta var og hvað þetta er vont fyrir málstaðinn. Hvaða helv. málstað. Þessi mál varða okkur öll, í hvaða samhengi sem við kjósum svo að sjá það: viljum við að Ísland verði vinnubúðir fyrir Aloca þar sem allt stendur og fellur með geðþóttaákvörðunum þeirra. Er virkilega einhver hér sem trúir því að þeim sé umhugað um okkur.
Jú ég er almáttug rússnesk byltingamóðir og ég get stjórnað öllum þeim sem hafa einhvern tíman ákveðið að mótmæla. Og ég hefði átt að hafa stjórn á ungdóminum sem fer alltaf yfir strikið. Nei sannleikurinn er sá að ég hef engan áhuga að stjórna einum né neinum nema sjálfri mér. Mér fannst prívat og persónulega ekkert að því að bera skilti sem fór yfir strikið. Hef verið í mótmælagöngum erlendis þar sem enginn hefði verið handtekinn fyrir að brenna dúkku sem hefði verið eftirmynd Valgerðar eða réttara sagt Álgerðar. Skilur fólk virkilega ekki að Álgerður Valgerður er táknmynd stóriðjustefnunnar og enginn nema hún sjálf getur kennt því um. Hún er andlit stóriðjustefnunnar. Ál andlit sem segir að náttúran sem á að drekkja sé ekkert sérstök án þess að blikna. En við megum ekki sýna reiði okkar, það er jafnvel vafaatriði hvort að það megi hrópa í mótmælagöngum ef að því er beint gegn einstaklingum. Ef að eitthvað er vont fyrir málstaðinn er það að fólk firri sig ábyrgð á að halda áfram að vinna markvisst að því að sýna í orði og á borði að fólk er búið að fá nóg. En nei.... hvað gera fólk
býr til blágrænt Ísland með atkvæðum sínum og heldur áfram að tuða og gagnrýna og setja út á allt það sem hægt er að setja út á svo framarlega sem að það þurfi ekki að missa af sápuóperum og rifjasteikum lífs síns.

Ég er ekki talsmaður mótmælenda, ég er ekki talsmaður þinn, þið getið sjálf verið talsmenn, ég er bara minn eigin talsmaður og ég á sjálf mínar skoðanir. Þess vegna ætti ekki neitt sem ég segi að vera gott eða vont fyrir málstaðinn, málstaðurinn er okkar allra og ef að öllum sem er misboðið gerðu eitthvað þá myndu við sjá lýðræði í sinni sönnustu mynd. En merkilegt nokk þá voru kjörsókn hin allra lélegasta síðan 1945. Það er greinilegt að meirihluti Íslendinga er nákvæmlega sama um landið sitt.

Ég hef nú lokið reiðilestri mínum og líður miklu betur.... hætt að brenna inni í mér....
og treysti mér í vinnuna og ætla að reyna að halda kjafti þar
ég er bara grafískur hönnuður með áhuga á bíó
og á ekkert með það að vera að skipta mér að einu eða neinu öðru þar
ætla að tala um mat í dag og HM
ég ætla að tala um Silvíu Nótt, hvað mér þykir hún frábært brandari
ég ætla að fitta inn og hætta að vera í þessari andstöðu
mótstöðu ég vildi að ég væri grænmeti
ætli það sé ennþá hægt að fá aðgerð
þar sem skorinn er úr hluti af heilanum svo maður sé meðfærilegri